Úr kreppunni??????

 

Undirritaður verður sjaldan kjaftstopp.  En það gerðist við lestur þessarar fréttar. 

 

Steingrímur sagðist vilja „að draga vagninn á sviði ríkisfjármála og efnahagsmála, og koma þessu landi út úr kreppunni.“

 

VG hefur af mikill hörku barið niður tilraunir til að skapa atvinnu og hagvöxt.  Ég mynni á alþjóðlega heilbrigðisþjónustu, gagnaver, virkjanir, álver, flugþjónustu, Magma-ruglið, Húsavíkursvæðið og fleira og fleira... ein lítil kísilverksmiða telur ekki mikið.  Ég mynni á Svandísi Svavars og framgöngu hennar varðandi hreppana á suðurlandi, Suðurlínu og fl.

 

VG hafa á ENGAN hátt gert nokkuð það sem „kemur þessu landi úr kreppunni“ heldur unnið efnahagsleg skemmdarverk.  Aftur og aftur.

 

Krónan féll um helming, það er mjög ódýrt fyrir erlenda fjárfesta að byggja upp á íslandi núna.  Hér ætti að vera kominn bullandi uppbygging og hagvöxtur.

 

Í staðinn er áfram atvinnuleysi, lélegur kaupmáttur og fólksflótti. 

 

Kreppan ÆTTI að vera búin og bullandi uppgangur.  Kaupmáttur hækkandi.  Fasteignaverð hækkandi og eigið fé að myndast aftur hjá fólki. 

 

Stjórnvöld þurftu enga snilld að sýna.  Bara það eitt að þvælast ekki fyrir hefði dugað.

 


mbl.is Steingrímur íhugaði afsögn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gagnaver(kæligeymslur) – sárafá störf.


Flestir hafa ranghugmyndir um gagnaver. Gagnaver eru bara kæligeymslur. Sárafá störf skapast.

Sjá:
„For instance, Microsoft will staff its 500,000-square-foot Chicago data center with only 35 people“
http://www.cio.com/article/389013/How_to_Staff_Your_Next_Data_Center

Kannski (og ég meina kannski) má fá hærra verð fyrir rafmangnið, en gagnaver eru engin lausn í atvinnumálum. Margir myndu segja að uppbygging iðnaðar án atvinnusköpunar (næstum) sé sóun á okkar dýrmætu orku... eða hvað?


mbl.is Er álvinnsla arðbærust?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uppbyggingu og hagvöxt takk.


Vinstri stjórnin hefur sýnt sig óhæfa. Hún hefur setið í tvö ár og árangurinn er enginn. Hún hefur engar lausnir, getur ekki skapað atvinnu eða hagvöxt. Hún getur aðeins tekið á ómerkilegum smámálum sem engu breyta. Bann á sólarbekki er ekki stóra málið núna. Nóg komið, þetta er búið.

Það verður að fá stjórnvöld sem hafa getu til að skapa og byggja. Fólk þarf hærri tekjur til að geta lifað og staðið í skilum. Þá er atvinnuleysið óþolandi.

Kosningar -- já takk !!


mbl.is Vilja draga skattahækkanir til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Gunnlaugur Ásgeirsson

Höfundur

Gunnlaugur Ásgeirsson
Gunnlaugur Ásgeirsson

 

 

 

 

Tölvunar og rafiðnfræðingur

Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 0
  • Frá upphafi: 8035

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 0
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband