21.2.2011 | 22:47
Úr kreppunni??????
Undirritaður verður sjaldan kjaftstopp. En það gerðist við lestur þessarar fréttar.
Steingrímur sagðist vilja „að draga vagninn á sviði ríkisfjármála og efnahagsmála, og koma þessu landi út úr kreppunni.“
VG hefur af mikill hörku barið niður tilraunir til að skapa atvinnu og hagvöxt. Ég mynni á alþjóðlega heilbrigðisþjónustu, gagnaver, virkjanir, álver, flugþjónustu, Magma-ruglið, Húsavíkursvæðið og fleira og fleira... ein lítil kísilverksmiða telur ekki mikið. Ég mynni á Svandísi Svavars og framgöngu hennar varðandi hreppana á suðurlandi, Suðurlínu og fl.
VG hafa á ENGAN hátt gert nokkuð það sem „kemur þessu landi úr kreppunni“ heldur unnið efnahagsleg skemmdarverk. Aftur og aftur.
Krónan féll um helming, það er mjög ódýrt fyrir erlenda fjárfesta að byggja upp á íslandi núna. Hér ætti að vera kominn bullandi uppbygging og hagvöxtur.
Í staðinn er áfram atvinnuleysi, lélegur kaupmáttur og fólksflótti.
Kreppan ÆTTI að vera búin og bullandi uppgangur. Kaupmáttur hækkandi. Fasteignaverð hækkandi og eigið fé að myndast aftur hjá fólki.
Stjórnvöld þurftu enga snilld að sýna. Bara það eitt að þvælast ekki fyrir hefði dugað.
|
Steingrímur íhugaði afsögn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Um bloggið
Gunnlaugur Ásgeirsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 8662
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.